Gagnasafn

12. maí 2006 klukkan 23:39

Á þessa síðu verður ekkert sett nema myndir af elsku kisunum mínum, þeim Sókratesi, Kíöru, Buxa og jafnvel Snældu ef ég finn einhverjar. Þessi síða er eingöngu ætluð til minningar um þessa ketti sem gáfu mér svo margt.
Snælda fór árið 2003 og Sókrates árið 2004. Bæði urðu fyrir bíl. Buxi og Kíara voru svo svæfð 12. maí 2006, Buxi vegna elliveikinda og Kíara vegna veikinda.

Snælda var fyrsti kötturinn minn og fékk ég hana þegar ég var 6 ára (1992).. eða það er að segja hún kom á heimilið þá. Hún var alltaf kisan hennar mömmu. Buxi var sonur hennar, fæddur árið 1993 og einn sá blíðasti köttur sem ég hef kynnst.

Sókrates var rétt tæplega tveggja ára þegar hann varð fyrir bíl og dó. Sókrates var snillingur í einu og öllu. Hann opnaði útidyrnar t.d. Hann var afskaplega fallegur kisi og er hans enn sárt saknað.

Kíara var stelpan mín og mín ein. Hún var fædd árið 2003 og fengum við að eiga hana í rétt 3 ár, en við fengum hana í lok maí. Hún var yndislegur kisi, 1/4 síamsblendingur og spjallaði mikið eins og þeim sæmir. Það voru ófáar næturnar sem við kúrðum saman upp í rúmi og stelpan mín sleikti mig alla og malaði hástöfum. Mjálmið hennar var yndislegt og finnst mér alveg hræðilegt að eiga ekki upptöku af því..

Ég er ekki enn að trúa að Kíara sé farin frá mér.. en svona er lífið víst oft ósanngjarnt og leiðinlegt.. Hvíl í friði, elsku Kúff Kúff.. mamma elskar þig og hlakkar til að sjá þig aftur..


Ragnheiður Gunnarsdóttir
1 athugasemd